08janúar

:):)

Hæj :)

Þá er ég komin heim frá Norge, eftir mikið ævintýri... Átti semsagt flug frá Bergen til Osló klukkan 11.05 á laug og svo frá Osló til Íslands klukkan 14.05 alltílagi með það.. Sat á flugvellinum í Bergen, svo kom tilkynning um 20 mín seinkun á fluginu ok ekkert mál, svo kom önnur tilkynning 20 mín í viðbót vegna þess að það var búið að ofbóka í vélina hmm varð pínu stressuð... Svo loksins var byrjað að hleypa inni vél og fult af fólki vísað frá og beðið um að bíða afþví það var búið að tvíbóka í fult af sætum ok og þar á meðal var ég, ég beið þarna í smá tíma fór svo og talaði við þau og sagði að ég yrði að komast með ég ætti flug til íslands kl 14.05.... Þau hleyptu mér svo fyrst útí vél af fólkinu sem beið, ég settist í mitt sæti og beið og beið og ekkert gerðist...
Svo byrjaði fólkið að koma inn og flugstjórinn sagði að við gætum ekki farið strax í loftið vegna trafík um flugbrautina í osló, þannig við þyrftum bara að bíða róleg...
Shit var orðin ógeðslega stressuð, svo biðum við og biðum hátt í 40 mín þá var öllum vísað frá borði, við þurftum semsagt að sækja töskurnar okkar og bóka okkur inn aftur... Æðislegt og ég búin að missa af fluginu mínu til íslands:(

Ég hringdi í ómar og hann kom , ætlaði bara að vera í Bergen í sólahring í viðbót og taka bara flug á sama tíma daginn eftir... En nei það var ekkert flug laust til osló daginn eftir þannig ég þurfti að gjörasvovel að fljúga til osló og vera á hóteli þar í heilan sólahring... Semsagt  föst í osló í heilan sólahring geggjað, get ekki sagt að það hafi verið gaman, sat á hótleherbeginu alein og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera hélt að þessi sólahringur ætlaði aldrei að enda...hehe
En vá hvað það var gott að komast heim í gær úffffff. GOTT NORÐMENN

En ég er nú allavega komin heim eftir allt saman... Fór beint í það að koma mér fyrir í Keflavíkinni, taka uppúr kössum og töskum orðið voðalega kósý hérna hjá mér:)

Fór  og náði í stundaskránna mína í dag, fínasta stundaskrá held ég bara, svo byrjar skólinn bara á fullum krafti á miðvikudaginn:)

Skellti mér svo í laugar í dag vááá erum við að grínast með fjöldan af fólkinu sem var að æfa .... Greinilega allir með áramótaheit að vera duglegir að æfa á nýju ári:)

Jæja ég ætla að fara að koma mér í háttinn góða nótt..


08. janúar 2008 klukkan 00:57
Elín María leósdóttir
4 athugasemdir
01janúar

2008:)

Þá er árið 2008 gengið í garð:)

Gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir það gamla;)

MySpace Graphics

Kveðja Elín María í Norge;)

MySpace Comments & MySpace Backgrounds
01. janúar 2008 klukkan 09:06
Elín María leósdóttir
2 athugasemdir
23desember

Gleðilega hátíð:)

þá eru jólin bara að renna í garð, ég var að koma til Noregs í dag og ætla að eiða jólunum hér með fjölskyldunni:) 

Ég vill bara óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, hafiði það sem allra best  um jólin og borðum á okkur gat :D nammi namm
Sjáumst svo bara hress og kát á nýju ári:)

Kveðja Elín María!
Glitter Photos

[Glitterfy.com - *Glitter Photos*]
23. desember 2007 klukkan 22:50
Elín María leósdóttir
1 athugasemd
30nóvember

Blogg.is:)

Góða kvöldið allir saman:)

Þá er tími til komin að koma með eitt stykki blogg er þaggi???

Þá er bikarmótið búið og ég er mjög svo sátt við minn árangur þar náði 5 sæti og fékk svo verðlaunin fyrir mestu framfarinar á árinu:D En allavega þá var þetta alveg frábært mót ótrúlega vel heppnað í alla staði:) Fult að flottum keppendum, pakkaður salur af áhorfendum, og ekki komust allir að sem vildu.. Miðarnir seldust upp bara um hálf fimm og tugi manna sem ekki fengu miða.... Greinilegt að þetta er að verða vinsælla og vinsælla sem er nú bara ekkert nema gottt;)

Óska öllum keppendum til hamingju með sinn árangur:) Og bar
a
takk fyrir frábært kvöld;)

Vill nota tækifærið og þakka honum sigga fyrir alla hjálpina, stendur alltaf við bakið á mani frábært að hafa hann.. Lang besti þjálfarinn:)

Siggi, Kristín og Marianne eru núna komin til Búdapest þar sem þau eru að fara að keppa á HM öldunga og unglinga sem hefst á morgun..:) og gangi þeim bara sem allra best...:)

Styttist heldur betur í jólin, crazy desember í vinnunni að byrja allir að láta klippa sig fyrir jólin, svo nottla bara halda áfram að æfa eins og brjálæðingur.... Ég ætla að fljúga út til Norge e-h í kringum 20-23 og ver með famelíunni um jólin, taka smá afslöppun á þetta :)

Er svo bara að bíða eftir svari frá skólanum hvort að ég komist inn eða ekki til að klára þetta blessaða nám, Allavega stefan er að fara suður eftir áramót og klára síðustu önnina vonum bara það besta:)

Ætla að segja þetta gott í bili endilega tékkiði á myndunum sem ég var að setja inn frá bikarmótinu:)

Góða helgi og hafiði það gott...:) ég ætla að eyða minni helgi í að vinna, slappa af og borða e-ð gott ummmmmm:)


MUNA SVO ALLIR AÐ KVITTA TAKK!!!!

Bikarmótið verður svo í sjónvarpinu 15.des...:)

Elín María

30. nóvember 2007 klukkan 22:31
Elín María leósdóttir
7 athugasemdir
29nóvember

Myndir frá Bikarmótinu!

Jæja var að henda inn myndum frá Bikarmótinu um helgina!

Endilega tékkiði á þeim.. Og allir að muna að kvitta!!!!

Blogga á morgun!;)

Sprella!
29. nóvember 2007 klukkan 22:16
Elín María leósdóttir
1 athugasemd
09nóvember

Hæjjjjjj:)

Jæja er ekki komin tími á smá blogg eða hvað??:)

Ég er nottla bara latasti bloggari í geiminum... Er búin að setjast oft niður fyrir framan tölvuna og reyna að skrifa e-ð svo endar alltaf með því að ég stroka það út og hætti...:)

En er að spá í að koma með smá í þetta skipti...:)

Allavega þá er bara fínt að frétta af mér styttist verulega mikið í mót, Noregsferð, jólin og skólan...

Þrekmeistarinn er um helgina og fín mæting þar yfir 100 keppendur skráðir svaka keppni... Svo eru ekki nema 2 vikur í Bikarmótið ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram finnst ég bara ný byrjuð að skafa og strax að koma að þessu...:) 

Vorum að panta brúnkukrem fyrir mót og sáum þarna svona sniðuga galla til þess að hlaupa í svona alveg lokaða úr svona plast efni e-h bara eins og pollagalli ákváðum að grípa þarna 2 með bara svona í gríni... Prófaði svo að hlaupa í þessu í morgun úff þetta var rosalegt eftir 20 mín voru bara byrjaðir að myndast pollar inní þessu og fossaði bara útúr ermunum, held að ég hafi aldrei á ævinni svitnað jafn mikið eftir hálf tíma varð ég að fara úr þessu , það var sko eins og ég hefði bara verið að koma úr sundi...:) alltaf gaman að prófa e-h nýtt haha

Svo ætla ég að skella mér út til Noregs svona í kringum 20. des og vera e-ð fram yfir áramót, ætla að eyða jólunum í faðmi fjölskyldunar, ekki búin að vera með þeim síðustu 2 jól þannig það er komin tími á það :)

Svo er ég bara flutt í Reykjavíkina þegar ég kem heim þ.e.a.s ef að allt gengur upp með skólan, sem verður að gerast annars verð ég brjáluð...!!!

Þetta er svona það helsta í fréttum hjá mér. Geri lítið annað en að vinna, æfa, borða og sofa þessa dagana..:)

En ég ætla að skella mér á dómarafund fyrir þrekmeistarann, blllleeee


09. nóvember 2007 klukkan 20:56
Elín María leósdóttir
2 athugasemdir
18september

Góðan og blessaðan daginn:)

Daginn...

Þá er ég komin frá noregi og byrjuð að vinna á fullu... Ætla að vinna 50% í ræktinni og 50% á stofunni fram að áramótum... þá er það skólinn sem tekur við ( vonandi kemst maður inn í þá).

Svo er það niðurskurðurinn... allt komið á fult þar, mataræðið orðið gott og æfingarnar komnara á fult... Sem er nottla bara ekkert nema gaman:)  Líka ótrúlega gaman að vera að byrja að skera og þurfa ekki að fara að vinna niður e-h 10 kg niður  bara munur.. Er semsagt léttari núna en á síðasta móti... Líka búin að vera ótrúlega dugleg að halda mér í sumar.. Bara gott mál þannig það verður spennandi að sjá hvernig maður verður á næsta móti:)

Skellti mér suður um helgina á Fusion fitness festival í laugum, þar koma fult af kennurum að utan og eru með kynningar á allskonar tímum ótrúlega gaman:)

Borðaði svo vel svona síðasta helgin sem að ég mátti leifa mér e-ð fyrir átökin, þannig það var borða mikið mikið :) ummmmm hehe

Ætlaði bara svona rétt að láta vita hvað er að gerast hjá mér þessa dagana..:)

Elín María...







 

18. september 2007 klukkan 18:56
Elín María leósdóttir
4 athugasemdir
23ágúst

Blogg eftir gott sumarfrí:)

Ég er að spá í að byrja aftur eftir smá pásu í þessu bloggi:)

Ég skellti mér til noregs núna 20 ágúst og ætla að eyða hérna 9 dögum í faðmi fjöskyldunnar:) Búið að vera alveg geggjað veður bara alveg síðan ég kom, alveg uppí 42 gráður á pallinum bara algjör snilld...:)

Kom á mánudaginn og var dreginn beint út að hlaupa við ómar skelltum okkur 10,8 km:) svo vorum við að kaupa 3 kæjaka og ég og mútta fórum 2 tíma túr hérna á vatni sem er rétt fyrir neðan, er alveg að ná tækninni þetta er nottla bara gaman ekki erfitt að verða húgt á þessu... Svo er maður bara búin að liggja í sólinni úti á palli og alveg að steikja sig hérna:)

Er búin að vera ótrúlega duglega að hreyfa mig hjóla, hlaupa og synda:) var að koma inn úr hjólatúr hjólaði eina 25 km!!

Svo var Inga þóra að hringja og spurja mig hvort að ég myndi ekki vilja framlegngja miðann minn svo hún gæti komið og verið hérna hjá okkur í viku, þannig að ég er að spá í að gera það og þá kemur hún á mán og við verðum þá saman hér í viku sem væri nottla bara gaman:)

Ég komst víst ekki inn í skólann þannig ég er ekki á leiðinni suður, verð á akureyri fram að áramótum og vonandi kemst maður í skólan þá ömurlegt að vera búin með samninginn og þurfa að fresta útskriftinni um hálft ár útaf e-h bulli hjá skólanum, vorum 6  sem komumst ekki inn!! alveg glatað!

Þannig það er góð spurning hvað maður fer að gera þegar maður kemur heim allt óljóst ennþá, en það er allavega nóg í boði sem betur fer!

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í dag ætla að skella mér í sólbað..:)

Kveðja sprella

*ekki gleyma að kvitta*




 

23. ágúst 2007 klukkan 09:53
Elín María leósdóttir
4 athugasemdir
24júní

Halló Halló..:)

Góðan og blessaðan daginn..:)

Allt gott að frétta af mér mega lélegur bloggari hér á ferð....

Allavega þá er famelían mín komin heim og ætlar að vera á akureyri hjá mér í mánuð, ótrúlega gaman að fá þau heim:)

Haldiði ekki að sprellan hafi skelt sér á djammið um síðustu helgi, ekki búin að fara á djammið í 6 mánuði...:) Við gamli djammhópurinn  hittumst heima hjá lilju og grilluðum þessar fínu steikur, fengum okkur hvítvín og sonna.. Svo var djúsað þar þanga til um 1 skelltum okkur þá í sjallann.. alveg hreint snilldar kvöld;)

Svo eru lilja og friðrik búin að skíra litlu prinsessuna sína og fékk hún nafnið Nadia Hólm svaka flott:) til hamingju með það elskurnar!

Helgina var bara í rólegri kanntinum og ákvað að henda inn hérna smá færslu, annars er ég alveg hætt að nenna þessu bloggi!! Allaveg er á lífi..

Var að henda inn nokkrum nýjum myndum þið getið kíkt á þær..

Svo vill ég bara fá kvitt frá öllum sem eru að skoða!!

Kveðja Elín María!

24. júní 2007 klukkan 18:46
Elín María leósdóttir
5 athugasemdir
29maí

Hún á afmæli í dag!

Er maður að verða gamall eða hvað:) tók mér frí í vinnuni í dag svona í tilefni dagsins, fékk líka þetta fínasta ammælisveður sól og blíða:) er svo að spá í að kíkka e-ð út að borða í kvöld:)

Skellti mér til Reykjavíkur um helgina, fór á ungfrú ísland, kíkkaði aðeins í heimsókn í keflavíkina,æfingar í laugum alltaf jafn gott að komast þangað,  skelltum okkur á smá djamm á sunn og svo heim í gær bara fínast Reykajvíkur ferð...:)

Nú fer að styttast í að ég fá fjölskylduna mína heim í mánuð, get eiginlega ekki beðið verður æðislegt að fá þau heim í smá tíma ... Dúllast með krakkana og sonna:)


ætlaði bara aðeins að láta heyra í mér, ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana...! þannig að ég ætla að láta þetta duga og skella mér e-ð út í góða veðrið..

kveðja sprella gamla ammælisstelpa!

29. maí 2007 klukkan 14:38
Elín María leósdóttir
3 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Leikir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...